Hraunborgir
Lava Village
Komdu í afslappað umhverfi með frábærri aðstöðu fyrir útivist, fjölskyldur og góðar stundir.
Falin paradís í einungis klukkustundar akstri frá Reykjavík.
Fullkomið fyrir fjölskylduna, einkaviðburði og ættarmót. Skjólgott tjaldsvæði með þjónustumiðstöð og rafmagni.
Öll helsta afþreying til staðar sbr. sundlaug, golfvöllur, minigolf, leiksvæði fyrir krakkana (trampólín, aparóla, leikkastali, rólur ofl.), karfa / fótboltamörk, veitingarstaður, sveitakrá, setustofa með TV og margt fleira. Einnig verslun fyrir helstu nauðsynjar.
Saga:
Jörðin Hraunkot (Hraunborgir) við Kiðjabergsveg í Grímsnes- og Grafningshreppi var keypt af Sjómannadagsráði árið 1964 og byggðist upp í kringum fjölskyldur sjómanna. Starfsemin í þjónustumiðstöðinni var rekin af Sjómannadagsráði allt til ársins 2018 þegar þjónustumiðstöðin var seld út til einkaaðila. Á staðnum er útsýnisskífa þar sem hægt er að sjá hvernig landið liggur og læra helstu örnefni nágrennisins.
Við bjóðum upp á fjölbreytta aðstöðu og þjónustu fyrir gesti, hvort sem um er að ræða tjaldsvæði, sumarbústaði eða afþreyingu í fallegu umhverfi.