Opnunartími
Virka daga
11:00–21:00
Um helgar
09:00–23:00
Stundum opnum við fyrr eða höfum opið aðeins lengur.
Sundlaugin í Hraunborgum
Yndisleg sveitasundlaug, heitir pottar og sauna. Laugin var fyrir nokkru valin ein af 100 bestu laugum Íslands. Sólbekkir til þess að njóta sín í sólinni og hægt að fá ískalda drykki afgreidda beint í heitu pottana.
Hægt að leigja sundlaugasvæðið fyrir atburði og veitingar.
Til staðar það helsta ef það þarf að bjarga sér, sbr. sundföt, handklæði og sundbleiur sem fást í afgreiðslunni. Kútar og leikföng fyrir krakkana.
Á góðum sumardegi er fátt betra en að njóta sína á sundlauga kantinum með ískalda drykki og krap. Mikil stemning.
Hafa sambandKauptu dagsaðgang í sund
Veldu dagsetningu og aldursflokk og greiddu örugglega á netinu. Miðinn gildir allan valinn dag innan opnunartíma.
Fullorðnir 1.800 kr. · Börn 7–14 ára 900 kr. · Börn 6 ára og yngri ókeypis.
Fyrir einkaleigu sundlaugarsvæðisins, hópa eða viðburði: hafðu samband við okkur.
