Tjaldsvæðið

Velkomin á tjaldsvæðið í Hraunborgum – fullkominn staður fyrir náttúruunnendur, fjölskyldur og vinahópa sem vilja njóta afslappaðrar útivistar.

Frábær staður fyrir fjölskyldur og hópa

Falin paradís fyrir fjölskylduna. Rómantískt og skjólgott tjaldsvæði með fallegu útsýni og mikið af gönguleiðum. Nóg af rafmagnstenglum og bílastæðum. Útisalerni og vaskar fyrir uppþvottinn og ruslagámar á svæðinu. Útsýnisskífa uppi á hæð sem sýnir helstu staðarheiti.

Öll helsta afþreying til staðar sbr. sundlaug og sauna, golfvöllur, minigolf, leiksvæði fyrir krakkana (trampólín, aparóla, leikkastali, rólur ofl.), karfa / fótboltamörk, veitingarstaður, sveitakrá, setustofa með TV og margt fleira. 

Nýbúið að stækka tjaldsvæðið og því nóg af plássi. Einstaklega hentugt fyrir ættarmót og stærri hópa. Hægt er að leigja “Bryggjuna” sem er yfirbyggður hluti af veitingastaðnum fyrir þá sem vilja halda sérstaklega hópinn.

Alltaf stemning í Hraunborgum

Þjónusta og afþreying

Við þjónustumiðstöðina Hraunborgir, sem er staðsett við tjaldsvæðið, er að finna:

01

Þvottavél og þurrkara

02

Sundlaug og heita potta

03

Golfvöll og mini-golf

04

Körfuboltavöll

05

Leiktæki og leikherbergi

06

Sjónvarpsaðstöðu og útsýnisskífu

Við erum á Suðurlandi

Tjaldsvæðið okkar er staðsett á Suðurlandi, umlukið stórbrotinni náttúru og frábærri útivist. Smelltu á hnappinn hér að neðan til að opna staðsetninguna í Google Maps.

Opna í Google Maps