Þjónustumiðstöðin í Hraunborgum
Falin paradís fyrir fjölskylduna. Rómantískt og skjólgott tjaldsvæði með fallegu útsýni og mikið af gönguleiðum. Nóg af rafmagnstenglum og bílastæðum. Útisalerni og vaskar fyrir uppþvottinn og ruslagámar á svæðinu. Útsýnisskífa uppi á hæð sem sýnir helstu staðarheiti.
Öll helsta afþreying til staðar sbr. sundlaug og sauna, golfvöllur, minigolf, leiksvæði fyrir krakkana (trampólín, aparóla, leikkastali, rólur ofl.), karfa / fótboltamörk, veitingarstaður, sveitakrá, setustofa með TV og margt fleira.
Nýbúið að stækka tjaldsvæðið og því nóg af plássi. Einstaklega hentugt fyrir ættarmót og stærri hópa. Hægt er að leigja “Bryggjuna” sem er yfirbyggður hluti af veitingastaðnum fyrir þá sem vilja halda sérstaklega hópinn.
Alltaf stemning í Hraunborgum
Hafa samband