Golf í Hraunborgum

Frábær 9 holu “par 3” golfvöllur rekin af golfklúbbi Hraunborga. Völlurinn hentar öllum aldurshópum og er skemmtilegur jafnt þeim sem eru reynslumiklir og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref. 

Golfklúbbur Hraunborga var stofnaður árið 2013 og er félagasamtök um golfvöllinn í Hraunborgum í Grímsnes og Grafningshrepp.

Golfvöllurinn er opin fyrir öllum, þ.e.a.s. bæði fyrir félagsmenn og aðra áhugasama golfara sem vilja spila staka hringi á vellinum, en verðskrá golfklúbbsins má finna á heimasíðu golfklúbbsins https://www.gkh.is/

Rástíma þarf ekki að panta nema um stærri hópa sé að ræða.

Lausaganga hunda er stranglega bönnuð á vellinum.

Árlega eru haldin hin ýmsu mót en þau eru auglýst á heimasíðunni. 

Hin vinsæli Kiðjabergs golfvöllur er einnig örstutt frá en þar geta þeir spilað sem vilja meira krefjandi aðstæður. 

Svo er ekkert betra en pizza og ískaldur bjór á útipallinum í lok vel heppnaðs dags.

Hafa samband