Meira en bara stæði.
Þjónustumiðstöðin verður opin í vetur. Þar verður hægt að kaupa veitingar, fara í sund og njóta góðrar stemningar. Um helgar verða meðal annars bingó, pub quiz og fleiri viðburðir sem verða auglýstir hverju sinni.
Vetraropnunartími þjónustumiðstöðvarinnar:
Föstudagar kl. 16:00–21:00
Laugardagar kl. 11:00–21:00
Sunnudagar kl. 11:00–17:00
Viljir þú koma á öðrum tíma geturðu hringt í Íba í síma 833 3439 og hann gerir sitt besta til að aðstoða.
Fyrstu 20 staðfestu og greiddu stæðin kosta 180.000 kr. Eftir það hækkar verðið í 220.000 kr. Kaupin staðfesta þitt stæði.


